Færslur

Færslu sem þessa þarf ekki að sýsla með í Elementor nema ef fólki finnst það þægilegra eða setja á forsniðnar vefeiningar inn á færslurna. Alla jafna eru færslur samt hafðar sem textafærslur með eða án mynda. Það er hægt að nota ritþórinn beint á svæðinu sem þú sérð um leið og færsla er búin til. Í vinnsluham ertu með stjórnborð vefsins í vinstri stiku en stillingar færslunnar i hægri dálki. 

Hliðarstikan hægra megin

Stillingar eiga eingöngu við þessa færslu.

  • Birta á vef – möguleiki á að hafa færslu birta eða jafnvel stilla birtingu fram í tíma. 
    • SEO Analysis  og Readability analysis – hjálplegt fyrir leitarvélar ef við náum grænu á bæði 
  • Flokkar – það er hægt að flokka færslur til dæmis í greinar, fréttir, viðburðir 
  • Efnisorð – það er hægt að setja efnisorð á færslur þannig að það sé hægt að kalla fram allar greinar með ákveðnu efnisorði
  • Eigindi færslu – mögulegt að búa til mismunandi sniðmát fyrir færslur 
  • Feature image – myndin sem á að birtast með færslunni

Miðsvæði

Undir ritþór kemur Yoast SEO sem þú getur nýtt þér til þess að hjálpa leitarvélum að finna efnið þitt. Það getur verið erfitt að fá SEO á grænan lit.  Það frekar auðvelt að ná Readability á grænan. Efni sem sett er upp á læsilegan hátt með frekar stuttum setningum, stuttum málsgeinum, millifyrirsögnum sem brjóta upp texta og punktalistum í stað upptalningar uppfylla skilyrði um auðveldan lestur. 

Seinasta setningin er viljandi gerð löng. Betra væri að umorða þá setningu og setja upp á annan hátt. 

Dæmi:

Til að efni sé auðlesið er gott að hafa:

  • stuttar setningar (um það bil 20 orð)
  • málsgreinar stuttar (5 linur)
  • millifyrirsagnir sem brjóta upp texta
  • punktalista fyrir upptalningar